Að panta prufur
Að velja efni á netinu getur verið erfitt, ekki síst í fyrstu skiptin. Myndir segja ekki allt því áferð, þyngd og snerting við efnið skipta oft meira máli en litur á skjá - og skjáir eru líka misjafnlega nákvæmir. Þess vegna bjóðum við upp á prufur. Þeim er ætlað til að hjálpa þér að taka upplýsta ákvörðun, án pressu og án þess að þurfa að giska.
Svona virka prufurnar:
Á hverri vöru síðu geturðu valið Fáðu prufu.
Prufurnar eru í góðri stærð svo þú getir fundið áferðina, séð hvernig efnið hagar sér og metið þykkt, mýkt og fall (draperingu). Þannig veistu betur hvort efnið hentar verkefninu sem þú hefur í huga. Prufurnar eru nógu stórar í meðhöndlun til að fá þessa tilfinningu og upplýsingar.
Sending og kostnaður
Prufurnar sjálfar eru ókeypis. Þú greiðir aðeins sendingarkostnað:
Pósturinn: 500 kr – hæg sending án rakningar
Dropp: 990 kr – hraðari sending með rakningu
Áður en þú pantar:
Það er ekkert hámark á prufum (nema bara ein af hverju efni). Það er einmitt mjög sniðugt að nýta sendinguna svo ekki hika við að fá fleiri en þær sem eru efst á listanum þínum.
Ef þú ert með spurningar um efni, notkun eða magn er þér alltaf velkomið að hafa samband hallo@saei.is