Sæi opnar
Ef fall er fararheill þá er bjart framundan hjá Sæi. Eftir margs konar tafir náðist loks að panta efni og setja upp vefsíðu og þá hélt maður nú að allt væri komið af stað. Í bjartsýni minni opnaði ég fyrir sölu á efni sem ég taldi vera tvo daga frá því að koma til landsins og úr tollinum en nei, þá hafði það verið sent til Írlands! Eftir að upp komst um mistökin var það svo sent fram og til baka milli London og Duives í Hollandi nokkrum sinnum, mér var alveg hætt að lítast á blikuna. Á meðan þorði ég ekki að auglýsa. Þegar efnið var loksins komið þá kom næsta vandamál í ljós, það var fullt af leyndum göllum í vefsíðunni þannig að hún var ekki að virka. Það er eins gott að ég vissi ekki hvað þetta væri mikil vinna að setja upp svona síðu annars hefði ég ekki farið út í þetta. Hef reyndar gert það amk þrisvar sinnum áður en þá með miklu einfaldari vöru sem var ekki með mælanlegar einingar til að selja. Það endaði með því að ég vann síðuna alveg upp á nýtt. Þó að allt virðist eins þá er þetta þannig lagað séð ný síða.
Mér þætti mjög vænt um að vera látin vita ef eitthvað vesen kemur upp við pantanir eða annað og ég vil endilega fá endurgjöf eða óskir um vöru/efni. Það má alltaf senda á hallo@saei.is
En efnið er allt svo fallegt, mjúkt og vandað að það er erfitt að standast freistinguna og fá mér af öllum! Staðan þegar þetta er skrifað er að þýðingar eru ekki alveg kláraðar og ég þarf að taka myndir af yndislegu Merino sem er komið í hús en kemst ekki á síðuna fyrr en myndir eru komnar. Ég hlakka svo mikið til að deila því með ykkur.