Persónuverndarstefna

Persónuverndarstefna Sæis ehf.

Ábyrgðaraðili Sæi ehf., kt. 620825-0260, Súðarvogi 34, 104 Reykjavík, ber ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga í vefversluninni saei.is. Fyrirspurnir sendist á hallo@saei.is.

Hvaða upplýsingum er safnað

  • Nafn, heimilisfang, netfang og símanúmer sem kaupandi gefur upp við pöntun.
  • Pöntunarsaga og samskipti við Sæi.
  • Netfang þeirra sem skrá sig á póstlista.
  • Tæknilegar upplýsingar um heimsóknir, svo sem vafrakökur, IP-tala og tegund tækis.

Kortaupplýsingar fara beint til Teya og eru aldrei vistaðar hjá Sæi.

Til hvers upplýsingarnar eru notaðar

  • Til að afgreiða og senda pantanir og veita þjónustu (efndir samnings).
  • Til að uppfylla lagaskyldur, t.d. um bókhald (lagaskylda).
  • Til að senda fréttabréf, aðeins með samþykki sem hægt er að draga til baka hvenær sem er (samþykki).
  • Til að tryggja öryggi vefsins og bæta hann (lögmætir hagsmunir).

Hverjir fá upplýsingarnar Sæi selur aldrei persónuupplýsingar. Eftirfarandi þjónustuaðilar vinna með upplýsingar fyrir hönd Sæis, eingöngu að því marki sem þarf:

  • Shopify (vefverslunarkerfi)
  • Teya (greiðslur)
  • Dropp (sendingar)
  • Product Samples (prufur)
  • Shopify Email (fréttabréf)
  • Meta (auglýsingar og mælingar í gegnum Meta Pixel)

Sumir þessara aðila geta unnið með upplýsingar utan EES. Í þeim tilvikum er flutningurinn byggður á viðeigandi verndarráðstöfunum, svo sem stöðluðum samningsákvæðum.

Hve lengi upplýsingar eru geymdar Bókhaldsgögn, þar á meðal pantanir, eru geymd í sjö ár samkvæmt lögum um bókhald. Netfang á póstlista er geymt þar til viðkomandi afskráir sig. Aðrar upplýsingar eru ekki geymdar lengur en þörf er á.

Réttindi þín Þú átt rétt á að fá aðgang að upplýsingum um þig, fá þær leiðréttar eða þeim eytt, andmæla vinnslu og draga samþykki til baka. Sendu beiðni á hallo@saei.is. Þú getur einnig kvartað til Persónuverndar (personuvernd.is).

Vafrakökur Vefurinn notar nauðsynlegar vafrakökur til að verslunin virki. Aðrar vafrakökur, t.d. til greiningar eða auglýsinga, eru aðeins notaðar með samþykki.