Efni eru hjarta hönnunar. Hugmyndir skapa línur og form, en vefnaðurinn gefur þeim líf. Engin hönnun er sterkari en efnið sem hún er unnin úr.

Íslenskir hönnuðir og handverksfólk hafa lengi þurft að leita út fyrir landsteinana að gæðaefnum. Sæi er stofnað með því markmiði að gera breytingar á því. Við veljum efni af nákvæmni, með áherslu á náttúruefni og sjálfbærni að leiðarljósi, sem henta bæði fagfólki og áhugafólki.

Markmið Sæis er að gera gæðavörur aðgengilegar, svo fleiri geti unnið úr efnum sem endast og hafa gildi til framtíðar. Með því viljum við styðja við sköpun, hvort sem hún á sér stað hjá fagfólki eða áhugafólki.

Við vonum að Sæi verði uppspretta innblásturs, verkfæri til að efla hugmyndir og leiði til hönnunar sem hefur bæði innihald og tilgang.

Á bak við hvert vel unnið verk liggur vel valið efni.

Frekari upplýsingar um Sæi og stofnandann er að finna hér