Hvar er verslunin staðsett?
Sæi er núna eingöngu netverslun. Við opnum í október 2025 og á næsta ári verður einnig hægt að sækja pantanir beint í lagerinn okkar.
Hvað tekur afhending langan tíma?
Við afgreiðum pantanir innan 2–3 virkra daga. Sendingartími fer síðan eftir afhendingarþjónustu Dropp.
Hvernig get ég skoðað efnin?
Þú getur pantað prufur beint á vefsíðunni. Við sendum þær með pósti, svo getur þú valið það efni og magn sem hentar.
Er hægt að fá ráðgjöf um efni?
Já, endilega! Sendu okkur línu og við aðstoðum þig við að velja efni sem henta verkefninu þínu.