Snið!

Ný snið frá The Assembly Line

Það voru að koma inn slatti af sniðum frá sænska fyrirtækinu The Assembly Line. Þó að ég hanni mín eigin snið þá er TAL eina sniðfyrirtækið sem ég nota sjálf þegar ég vil flýta fyrir mér og á ekki grunnsnið til að byggja á. Sniðin þeirra eru einstaklega vel hönnuð, skýr í uppsetningu og falleg í formi. Þau eru í raun einu sniðin sem ég kaupi sjálf.

Heimur saumasniða hefur breyst mikið á undanförnum árum. Sjálfstæð hönnuðamerki hafa blómstrað og byggt upp sínar eigin raddir og samfélög, og úrvalið hefur aldrei verið betra. Það er meiri áhersla á form, gæði og notkun en áður.

Ég hugsaði mig lengi um áður en ég ákvað að taka snið inn á Sæi. PDF-snið eru frábær lausn fyrir marga og gera aðgengi að hönnun auðveldara. En pappírssnið hafa líka sína kosti. Þau eru tilbúin til notkunar, í fullri stærð og án samsetningar. Fyrir suma sparar það tíma og einfaldar ferlið.

Pappírssnið eru vissulega dýrari vara – ekki aðeins vegna sendingarkostnaðar heldur líka vegna framleiðslunnar sjálfrar: prentun í fullri stærð, pökkun og umgjörð. En þau bjóða upp á ákveðna vinnuupplifun sem margir kjósa og það er auðveldara að geyma þau til að endurnýta.

Eitt ráð byggt á reynslu: Mörg sniðin frá TAL gera ráð fyrir notkun flíselíns. Persónulega sleppi ég því oft, sérstaklega þegar um er að ræða léttari og mýkri flíkur. Fyrir reyndara saumafólk getur það verið einföld ákvörðun, en fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref getur flíselín vissulega gert ferlið stöðugra og fyrirsjáanlegra.

Ástæðan fyrir því að ég sleppi því stundum er sú að flíselín hefur tilhneigingu til að bregðast við þvotti - það getur hlaupið ef hitinn er of hár eða losnað með tímanum, sem getur myndað fellingar eða ójöfnur í efninu. Mér finnst líka oft einfaldlega þægilegra og mýkra að vinna án þess.

Í hefðbundinni framleiðslu er flíselín ekki alltaf notað, nema þegar þörf er á uppbyggingu og skýrari strúktúr. Í slíkum tilvikum - til dæmis í flíkum sem eru þurrhreinsaðar frekar en þvegnar heima — getur það verið mjög góð lausn.

Til baka á bloggið

Skrifa athugasemd

Athugið að athugasemdir þurfa að vera samþykktar áður en þær eru birtar.