Verð og pantanir
Öll verð í vefverslun Sæis eru í íslenskum krónum (ISK) og innihalda virðisaukaskatt.
Ef upp kemur augljós villa í verðmerkingu áskiljum við okkur rétt til að leiðrétta hana áður en pöntun er afgreidd.
Þegar pöntun hefur verið skráð fær viðskiptavinur staðfestingu í tölvupósti. Ef vara reynist ekki til á lager verður haft samband og boðin endurgreiðsla eða nýr afhendingartími.
Sendingar og afhendingar
Pantanir eru sendar með Dropp, sem býður afhendingu í pakkahólf, á afhendingarstað eða heim að dyrum.
Sendingargjald er samkvæmt gjaldskrá Dropp og birtist í kaupferlinu.
Fyrir pantanir yfir 15.000 kr. er ekki innheimt sendingargjald.
Afgreiðslutími er að jafnaði 2–5 virkir dagar frá pöntun.
Viðskiptavinur ber ábyrgð á að gefa upp rétt heimilisfang og tryggja að póstkassi sé merktur með nafni.
Skil og endurgreiðslur
Þar sem efni frá Sæi er klippt sérstaklega eftir pöntun er ekki hægt að skila nema ef vara sé gölluð eða röng, þá bjóðum við annaðhvort fulla endurgreiðslu eða nýtt efni án aukakostnaðar. Til að fá nýtt efni þarf að skila öllu keyptu efninu, jafnvel þótt hluti þess hafi verið klipptur niður.
Við mælum með að viðskiptavinir tryggi að rétt magn sé valið áður en pöntun er staðfest.
Greiðslumátar
Hægt er að greiða með helstu debet- og kreditkortum í gegnum örugga greiðslugátt Teya.
Allar kortafærslur fara í gegnum dulkóðað kerfi Teya og eru því ekki geymdar af Sæi.
Meðferð persónuupplýsinga
Við virðum friðhelgi viðskiptavina okkar og vinnum með persónuupplýsingar af varfærni.
Upplýsingar sem berast í gegnum pöntunarkerfið eru eingöngu notaðar til að vinna úr pöntunum og bæta þjónustu.
Gögn eru aldrei afhent þriðja aðila nema það sé nauðsynlegt til að afgreiða pöntun eða vinna úr greiðslu.
Viðskiptavinir geta óskað eftir afriti af upplýsingum sínum eða látið eyða þeim með því að hafa samband við okkur.
Lög og ágreiningur
Skilmálar þessir lúta íslenskum lögum.
Komist upp ágreiningur sem ekki tekst að leysa með samkomulagi verður hann borinn undir Héraðsdóm Reykjavíkur.
Sæi Ehf
Kt 620825-0260
Vsk 158607