Um stofnandann

Sæi er stofnað og rekið af mér, Ragnheiði Kötlu Geirsdóttur, oft kölluð Ragga Katla. Ég var alin upp á hálfgerðri fatagerðarvinnustofu og byrjaði að hanna föt mjög ung, en leitaði snemma í búningahönnun og síðar í nám í myndlist í Los Angeles áður en ég fann mér lendingu í fatahönnun þar. Í stórborginni hafði ég aðgang að nánast endalausu úrvali af efnum og öllu sem tengist fatagerð, innan 20 mínútna frá heimili mínu. Það var eins og að komast í sælgætisbúð og heimurinn opnaðist algjörlega.

Þegar ég var nýbyrjuð í fatahönnun og fór að heimsækja verksmiðjur í borginni brá mér að sjá ástandið á mörgum þeirra. Það var nokkuð augljóst að vinnuaðstæður voru ekki mannvænar og að mengun og sóun var mikil. Þetta var fyrir tíma þeirrar vitundarvakningar sem síðar hefur orðið. Ég fór því snemma að sanka að mér upplýsingum og halda skrár yfir birgja sem buðu upp á sjálfbærari efni. Á þeim tíma var aðeins einn þekktur hönnuður sem sérhæfði sig í sjálfbærni, en í dag eru þeir orðnir mun fleiri og framboð gæðaefna hefur aukist til muna.

Eftir langan tíma fyrir vestan fór mig að langa heim, en vissi að það skref hefði í för með sér að ég gæti ekki lengur séð fyrir mér hefðbundin fatahönnunarstörf hérlendis. Árið 2018 ákvað ég þó að nú væri komin tími til að flytja heim. Síðan þá hef ég sinnt fjölbreyttum störfum og í gegnum störf mín með fatahönnunarfélagi Íslands fengið innsýn í þarfir og áskoranir íslenskra hönnuða. Þar varð mér ljóst að einn mikilvægur þáttur í því að efla umhverfi fatahönnuða er stöðugt aðgengi að gæðaefnum sem hvetja til sköpunar. Þegar ég varð vör við að fleiri væru í sama vanda og ég við að finna betri efni ákvað ég að taka þetta verkefni að mér. Í kjölfarið stofnaði ég Sæi.

Sæi er ekki eingöngu hugsað fyrir starfandi hönnuði, heldur einnig byggt á þeirri sannfæringu að ef fleiri taka upp saumavélina á ný og fá útrás fyrir sína skapandi hlið, muni það hafa jákvæð áhrif á viðhorf almennings til neyslu fatnaðar og þannig styrkja þá vitundarvakningu sem loks er hafin.

Ég veit ekki betri tilfinningu en að hefja, vinna að og klára verkefni eins og flík frá upphafi til enda, eða að breyta og bæta og þannig endurlífga hlut sem annars átti að fara í ruslið. Með Sæi leitast ég við að fleiri fái að njóta þeirrar upplifunar.

Til baka á bloggið

Skrifa athugasemd

Athugið að athugasemdir þurfa að vera samþykktar áður en þær eru birtar.