Sæi á Hönnunarmars 2026
Sæi stendur að verkefninu Í vinnslu: Efni ↔ Hönnun ↔ Flík, sem skoðar samband efnis, hönnunar og afurðar í fatahönnun.
Hönnuðirnir Ragga Katla Geirsdóttir (Tender Habit) og Ýr Þrastardóttir (Another Creation) vinna hvor með sitt efni og sínar aðferðir og þróa flík frá fyrstu hugmynd til fullmótaðrar afurðar.
Ferlið er skrásett í myndbandi sem fylgir þróun verksins, frá fyrstu tilraunum og ákvörðunum yfir í lokaútfærslu.
Verkefnið veitir innsýn í þá vinnu sem venjulega fer fram á bak við tjöldin í fatahönnun og varpar ljósi á hvernig efni, handverk og ákvarðanir móta lokaform flíkarinnar.