Safn: Voile/gegnsæ efni
Voile er fínt, létt og mjúkt efni ofið úr bómull. Það er þekkt fyrir að anda vel, hafa flæðandi draperingu og náttúrulega áferð sem leggst mjúklega að líkamanum.
Efnið er oft hálfgagnsætt og hægt að nota það í eitt lag fyrir léttleika eða tvöfalt fyrir meiri þekju.
Voile hentar einstaklega vel í blússur, kjóla, pils og léttar gardínur, en einnig sem fnis sem notað er til að styrkja ákveðna hluta flíkur að innan, án þess að gera hana stífa.
Þetta er efni sem andar, hreyfist og fangar birtu – og einmitt þess vegna hefur það lengi verið vinsælt í sumarflíkur og tímalausa hönnun sem leggur áherslu á einfaldleika, mýkt og léttleika.
-
Indversk Ikat bómull - Indigo Snjór
Venjulegt verð 3.800 ISKVenjulegt verðSöluverð 3.800 ISK -
Létt og mjúkt svart voile úr lífrænni bómull
Venjulegt verð 1.700 ISKVenjulegt verðSöluverð 1.700 ISK -
Gagnsætt bómullar voile Indigo
Venjulegt verð 3.000 ISKVenjulegt verðSöluverð 3.000 ISK