KenDor
Fínröndótt hemp/lífræn bómullar Chambray
Fínröndótt hemp/lífræn bómullar Chambray
Ekki tókst að hlaða upp afhendingarmöguleikum
Létt og fágað chambray-efni úr blöndu af hampi og lífrænni bómull. Yfirborðið er mjúkt og loftkennt, með fínlegum navy-röndum á rjómahvítum grunni sem gefa efninu klassískan en jafnframt afslappaðan svip.
Hægt er að fá fría prufu af efninu með því að panta hér: Prufa af röndóttu hemp/organic bómullar chambray.
Efnið er sérstaklega fallegt í skyrtur, létta kjóla, toppa og sumarflíkur þar sem óskað er eftir náttúrulegri áferð og góðri öndun. Hampurinn gefur efninu karakter og styrk, á meðan bómullin heldur því mjúku og þægilegu við húð.
Áberandi og vandaður selvedge-kantur í navy og rauðu setur punktinn yfir i-ið og hentar vel í sýnilegan frágang eða sem hönnunaratriði.
Samsetning: 55% hampur / 45% lífræn bómull
Breidd: 140 cm
Þyngd: 120 g/m²
Áferð: Létt, náttúruleg og loftkennd
Litur: Rjómahvítt með navy pinstripe röndum
Selvedge: Navy og rauður, sérstaklega breiður og fallegur
Mælt er með að þvo efnið áður en sniðið er eða klippt, þar sem náttúruleg trefjablönduð efni geta hlaupið við fyrsta þvott.
Þvoið við lágan hita (30°C), forðist þurrkara og hengið til þerris.
Straujið við miðlungs hita eða notið gufara eftir þörfum.
Share
