Sæi
Prentun á saumasniði
Prentun á saumasniði
Ekki tókst að hlaða upp afhendingarmöguleikum
Prentun á saumasniði
Keyptirðu snið sem PDF og nennir ekki að líma saman tugi A4 blaða? Í Sæi geturðu fengið sniðið þitt í réttri stærð á breiða rúllu, og hvert stykki prentast heilt, svo þú þarft ekkert að líma.
Verð: 1.700 kr. fyrir snið allt að 3 A0 síðum sem nær yfir flest snið.
Áður en þú pantar: Opnaðu A0 skjalið (oft kallað „A0“, „copyshop“ eða „large format“) og teldu síðurnar.
Er sniðið stærra en 3 A0 síður? Sendu skjalið á hallo@saei.is til að fá verðtilboð áður en þú pantar.
Svona virkar þetta:
- Þú pantar hér og sendir PDF skjalið á hallo@saei.is með pöntunarnúmerinu.
- Sniðið er sett upp og prentað. Prófunarferningurinn er mældur til að tryggja að stærðin sé rétt.
- Sniðið er venjulega tilbúið innan tveggja virkra daga og þá má sækja það í verslunina í Súðarvogi 34 á opnunartíma. Láttu vita í tölvupóstinum ef þú þarft það fyrr. Einnig er hægt að fá það sent með Dropp, en afhendingartími fer eftir staðsetningu.
Gott að vita:
- Bara A0 skjalið verður prentað, ekki A4 útgáfan. Flest snið fylgja í báðum útgáfum.
- Stykkjunum er raðað upp á nýtt svo þau passi á rúlluna, en stærð þeirra helst óbreytt og prófunarferningurinn fylgir alltaf með.
Ath. Myndin er gerð með gervigreind til að virða höfundarrétt og til að auglýsa ekki einn sniðaframleiðanda fremur en annan. Hún sýnir hvernig sniðið kemur út: heil stykki á breiðum pappír (um 60 cm), sem ekki þarf að líma saman.
Share
