Fara í upplýsingar um vöru
1 af 4

Deadstock

Silki og acetate krep í svörtu

Silki og acetate krep í svörtu

Venjulegt verð 9.800 ISK
Venjulegt verð Söluverð 9.800 ISK
Útsala Uppselt
Skattar innifaldir.

Svart crepe de chine í silki/acetate blöndu með mjúka áferð og fljótandi draperingar. Efnið er með örlitlu stretch sem eykur þægindi og gefur flíkum fallega hreyfingu. Hentar vel í toppa, blússur, skyrtur, kjóla og pils — bæði í einföld snið og flíkur þar sem draperingar fá að njóta sín.

Acetate er sellulósatrefja sem er unnin úr náttúrulegu hráefni og framleidd með svipuðu ferli og viskós. Það telst „man-made“ trefjaefni, en er ekki gerviefni í sama skilningi og pólýester eða akrýl. Í þessari blöndu gefur acetate efninu örlítið þurrari, „hráa“ áferð og smá „crispness“, á meðan silkið mýkir og bætir við fallegum glans og mjúkum draperingum.

Þetta efni er deadstock frá Dries van Noten og kemur því í takmörkuðu magni. Þegar það er uppselt verður það ekki fáanlegt aftur.

Efni: 65% acetate / 35% silki
Breidd: 134 cm
Þyngd: 105 g/m²
Litur: svart

Ath.: Litir geta birst mismunandi eftir skjám, og að litaðferðir geta gefið örlítið mismunandi útkomu í hverri litun.

Sjá nánari upplýsingar