Sæi
Steingrátt 100% Merino prjónaefni
Steingrátt 100% Merino prjónaefni
Ekki tókst að hlaða upp afhendingarmöguleikum
Mjúkt og þægilegt rib-jersey úr 100% merino ull. Efnið er teygjanlegt, með fínlegu sléttu og brugnu prjóni (1x1). Merino ullin er þekkt fyrir að vera hlý án þess að vera þung, öndunargóð og einstaklega notaleg við húð.
Þetta Merino er framleitt án Mulesing með virðingu fyrir dýrum og náttúru.
Hentar vel í boli, langermabolir, létta kjóla, undirflíkur, gollur og aðrar flíkur þar sem þægindi, hreyfanleiki og náttúruleg hitastjórnun skipta máli. Dökkgrái liturinn er hlutlaus og auðveldur í samsetningu, bæði einn og með öðrum efnum.
Samsetning: 100% Merino ull
Breidd: 160 cm
Þyngd: 200 g/m²
Gerð: Jersey
Litur: Steingrár
Þvottur og umhirða: Þvoið á ullarprógrammi eða í höndunum á ullarprógrammi (lágur hiti, lág vinda), notið ullarþvottaefni og forðist þurrkara. Leggið flatt til þerris til að halda lögun.
Share
