Sæi
TAL snið nr 108
TAL snið nr 108
Ekki tókst að hlaða upp afhendingarmöguleikum
Skandinavísk útgáfa af tímalausum kjól! Fullkominn á ströndina með sandölum, jafn fullkominn fyrir kvöldverðarpartý með uppáhalds hælaskónum þínum. Kaftankjóllinn er með laskermum, v-hálsmáli með yfirlagi sem myndar fellingu að framan, klaufum á hliðum og vösum innaná.
Fyrirsætan í hvíta kjólnum er 170 cm á hæð og er í stærð S, fyrirsætan í svarta kjólnum er 178 cm á hæð og er í stærð S, og fyrirsætan í röndótta kjólnum er 165 cm á hæð og er í styttri XL.
Þetta er pappírssnið og er vandlega pakkað í umslag ásamt samsetningarleiðbeiningum á ensku.
FINNDU ÞÍNA STÆRÐ Berðu líkamsmál þín saman við STÆRÐARLEIÐBEININGAR frá TAL. Kaftankjóllinn er mjög auðveldur í sniðinu og þar sem hann er A-línu sniðinn skaltu nota brjóstmál þitt til að velja stærð. Ef þú ert með breitt mjaðmarsvæði gætirðu líka athugað mjaðmarmál þitt til að tryggja að þú fáir þann "kaftan-flæði" sem við erum að tala um.
Það er hægt að leika sér með styttri ermar og eða styttri fald á þessum kjól til að fá fjölbreytta notkun úr sniðinu. Þar að auki breytist kjóllin mjög mikið með ólíku efnisvali. Síðast en ekki síst er þetta snið mjög þægilegt að nota sem kósífatnað heima í stað hefðbundins slopps sem opnast að framan.
EFNISÞÖRF:
110-120 cm efnisbreidd XS 3,6 m / S 3,7 m / M 3,8 m / L 3,9 m
140-150 cm efnisbreidd XS 2,3 m / S 2,4 m / M 2,7 m / L 3,0 m / XL 3,3 m / 2XL 3,4 m / 3XL 3,6 m
Efnisval: Létt til meðallétt efni eins og hör, bómull, silki, crêpe de chine eða tencel.
Hvíti kaftankjóllinn er saumaður úr tencel blöndu. Þú þarft einnig: Flíselín og tvinna í sama lit.
Share
