Sæi
TAL snið nr 115
TAL snið nr 115
Ekki tókst að hlaða upp afhendingarmöguleikum
Barrel kjóllinn er frumlegt og rúmgott snið með miðjusídd og pilsi í formi ámu sem er skemmtilegt en líka mjög klæðilegt. Hægt er að sauma hann með luktarlaga ermum (e. lantern sleeves) sem undirstrika form pilsins, eða ermalausan. Ermalausa útgáfan er falleg viðbót í sumarkjólasafnið.
Kjóllinn er með ávölum hálsmáli og lykilgati að aftan sem er lokað með hnappi og lykkju. Hægt er að nota skáborða meðfram hálsmáli og handvegum eða við ermakant. Að sjálfsögðu eru vasar í hliðarsaumum því allir - ekki bara karlar - þurfa vasa.
Til að fá enn meira út úr sniðpakkanum er hægt að nýta neðri hluta sniðsins og sauma pils eitt og sér. Á vefsíðu The Assembly Line má finna leiðbeiningar fyrir þá útfærslu. Einnig er toppurinn mjög fallegur einn og sér og með því að lengja efri hlutann lítillega má skapa sjálfstætt toppsnið. Þannig er hægt að fá allt að fjögur ólík snið út úr þessum eina sniðpakka.
Þetta er pappírssnið og er vandlega pakkað í umslag ásamt samsetningarleiðbeiningum á ensku.
EFNISÞÖRF FYRIR SAMANBROTIÐ EFNI (m)
Efnisþörf með ermum: 110-120 cm efnisbreidd XS 3,5 m / S 3,6 m / M 3,6 m / L 3,7 m / XL-3XL N/A* 140-150 cm efnisbreidd XS 3,0 m / S 3,1 m / M 3,1 m / L 3,2 m / XL 3,9 m / 2XL 3,9 m / 3XL 3,9 m
Efnisþörf án erma: 110-120 cm efnisbreidd XS 2,8 m / S 2,9 m / M 2,9 m / L 2,9 m / XL-3XL N/A* 140-150 cm efnisbreidd XS 2,2 m / S 2,3 m / M 2,3 m / L 2,4 m / XL 3,0 m / 2XL 3,0 m / 3XL 3,0 m
*Ef þú ert að sauma XL-3XL og ert með 110-120 cm breitt efni getur þú klippt sniðstykkið úr ósamanbrotnu efni.
Ráðlagt efni er létt til meðalþungt efni. Þú þarft einnig: Flíselín, tvinna í sama lit, hnapp.
Valkvætt: Tilbúið skáband - Langar ermar + hálsmál = 3,5 m / Ermalaust + hálsmál = 3,0 m (eða búðu til sjálf/ur úr kjólaefninu).
Share
