Fara í upplýsingar um vöru
1 af 7

Sæi

TAL snið nr 201

TAL snið nr 201

Venjulegt verð 4.800 ISK
Venjulegt verð Söluverð 4.800 ISK
Útsala Uppselt
Skattar innifaldir.
Magn

Elastic Tie peysan sameinar notalega tilfinningu peysu og skuggamynd klassískrar blússu með háu hálsmáli. Hún er með hálsmáli sem er dregið saman með teygju og myndar þannig fellingar (darts).

Peysan á myndinni er sýnd með Almost Long buxum frá TAL.

Fyrirsætan er 170 cm á hæð og klæðist stærð S.

Erfiðleikastig: Miðlungs

Gerðu meira með þessu sniði

Leiktu þér með útfærslu hálsmálsins, td með kilt-pilsa nælu. Styttu ermarnar eða prófaðu ermalausa útgáfu. Lengra komnir geta mögulega breytt í kjól.

Þetta er pappírssnið og er vandlega pakkað í umslag ásamt samsetningarleiðbeiningum á ensku.

Finndu rétta stærð

Berðu líkamsmálin þín saman við stærðartöflu TAL.

Elastic Tie peysan er nær beinu sniði með hefðbundnu víddarrými (ease), því er best að styðjast við brjóstmál við val á stærð. Fellingarnar sem myndast við teygjuna virka eins og brjóstinntektir og hægt er að stilla lengd teygjunnar eftir þörfum.

Efnisþörf

Breidd 140–150 cm
XS–S 1,3 m / M–L 1,5 m / XL 1,6 m / 2XL 1,9 m / 3XL 2,0 m

Mælt er með miðlungsþykkum efnum, til dæmis bómullartvíli, denim eða léttum canvas.

Þú þarft einnig:

Tvinna, 0,5 m teygju sem er 3 mm breið, 10 cm faldborða (hemfix) - 2,5 cm breidd, og
0,5 m milliefni eða flíselín.

Sjá nánari upplýsingar