Fara í upplýsingar um vöru
1 af 9

Sæi

TAL snið nr 304

TAL snið nr 304

Venjulegt verð 4.800 ISK
Venjulegt verð Söluverð 4.800 ISK
Útsala Uppselt
Skattar innifaldir.
Magn

Þessi auðveldi og þægilegi víðskálma samfestingur er með víðu V-hálsmáli að framan og aftan. Hann er með vösum, víðum skálmum og teygju í mitti að aftan. Mögulegt er að bæta við belti og beltislykkjum ef vill. Minnir á kaftankjól - en með skálmum! 

Gerðu fleiri útgáfur úr sniðinu:

Veldu ólíkt efni í bol og skálmar til að skapa áhugaverða andstæðu.
Notaðu annað efni í vasapokana til að setja persónulegan svip á flíkina.
Styttu skálmarnar og gerðu stuttbuxnaútgáfu.

Fyrirsætan er 170 cm á hæð og klæðist stærð S.

FÆRNI: 2-3 (lengra komin/n)

Þetta er pappírssnið og er vandlega pakkað í umslag ásamt samsetningarleiðbeiningum á ensku.

Finndu rétta stærð:

Berðu mælingar þínar saman við stærðartöflu TAL. Notaðu brjóstmál, mittismál og mjaðmamál við val á stærð.

Ef þú ert á milli tveggja stærða skaltu velja þá stærri. Flíkin er hönnuð til að vera rúmgóð. Áður en þú klippir efnið er einnig mikilvægt að mæla bolmælið (H hér að neðan) til að ganga úr skugga um hvort þú þurfir að bæta við lengd svo sniðið passi fullkomlega.

 

Efnisþörf:

Breidd 110–120 cm
XS 3,6 m / S 3,8 m / M 4,0 m / L 4,1 m / XL 4,5 m / 2XL 4,7 m / 3XL 5,1 m

Breidd 140–150 cm
XS 2,9 m / S 3,1 m / M 3,2 m / L 3,2 m / XL 3,2 m / 2XL 3,4 m / 3XL 3,6 m

Mælt er með léttum til miðlungsþykkum efnum. Ef efnið er of þykkt getur verið erfiðara að vinna með teygjuþráðinn.

Þú þarft einnig:

Saumþráð í stíl við efnið
Straujanlegt milliefni
Teygjuþráð (shirring elastic thread)

Sjá nánari upplýsingar