Sæi
TAL snið nr 403
TAL snið nr 403
Ekki tókst að hlaða upp afhendingarmöguleikum
A-laga midi pilsið er einfalt í saum með nútímalegum frágangi.
Það er með A-laga sniði, teygju í mitti og skásettum hliðarvösum. Sniðið býður upp á nokkrar útfærslur til að velja úr: hefðbundmið mittisband, „paper bag“ mittisband með beltislykkjum og belti, beinan fald, rúnnaða faldlínu eða fald með teygju.
Gerðu meira með þessu sniði
Notaðu pilsið sem kjól með Cuff toppi úr sama efni.
Sniðið hentar einstaklega vel í leðurpils.
Lengdu það í maxi-pils eða styttu í mini-pils.
Saumaðu með andstæðum saumþræði til að skapa áberandi smáatriði.
Notaðu „paper bag“ útgáfuna með öðru belti til að breyta heildarsvipnum.
Færni: 2 (miðlungs færni)
Þetta er pappírssnið og er vandlega pakkað í umslag ásamt samsetningarleiðbeiningum á ensku.
Finndu rétta stærð
Berðu líkamsmálin þín saman við stærðartöflu TAL. Notaðu mittismál og mjaðmamál við val á stærð.
Efnisþörf:
Breidd 110–120 cm
XS 1,7 m / S 1,9 m / M 2,0 m / L 2,1 m / XL 2,1 m / 2XL 2,3 m / 3XL 2,3 m
Breidd 140–150 cm
XS 1,3 m / S 1,3 m / M 1,4 m / L 1,7 m / XL 1,9 m / 2XL 1,9 m / 3XL 1,9 m
Mælt er með léttum til miðlungsþykkum efnum, til dæmis bómullarpopplíni, denim, ull, eða bómullartwill.
Þú þarft einnig:
Saumþráð í stíl við efnið
Straujanlegt milliefni (flíselín)
Fyrir hefðbundið mittisband – 50 mm teygju:
XS 70 cm / S 80 cm / M 90 cm / L 100 cm / XL 110 cm / 2XL 120 cm / 3XL 130 cm
Fyrir „paper bag“ mittisband – 30 mm teygju:
XS 70 cm / S 80 cm / M 90 cm / L 100 cm / XL 110 cm / 2XL 120 cm / 3XL 130 cm
Fyrir fald með teygju – 50 mm teygju:
XS 100 cm / S 110 cm / M 120 cm / L 130 cm / XL 140 cm / 2XL 150 cm / 3XL 160 cm
Share
