Fara í upplýsingar um vöru
1 af 9

Sæi

TAL snið nr 409

TAL snið nr 409

Venjulegt verð 4.800 ISK
Venjulegt verð Söluverð 4.800 ISK
Útsala Uppselt
Skattar innifaldir.
Magn

Blöðrupilsið er miðjusítt pils með útvíðu sniði, beinu mittisbandi, falinni renniláslokun að aftan og vösum í hliðarsaumum.

Pilsinu er ætlað að vera fjölhæft og býður upp á tvær útfærslur: með eða án hins einkennandi blöðruforms.

Gerðu meira með þessu sniði

Saumaðu topp úr sama efni og notaðu saman þannig að það líti út eins og kjóll.

Þetta er pappírssnið og er vandlega pakkað í umslag ásamt samsetningarleiðbeiningum á ensku.

Finndu rétta stærð

Berðu málin þín saman við stærðartöflu TAL. Notaðu mittismál og mjaðmamál við val á stærð.

Fyrir valkost 1 (blöðru) er hægt að sauma undirpils úr fóðurefni ef vill:
XS–S 1,0 m / M–L 1,2 m / XL 1,4 m / 2XL–3XL 1,6 m miðað við 140 cm efnisbreidd.

Athugið! Ekki er hægt að draga sama magn frá aðalefninu.

Mælt með efnum

Létt til miðlungsþykk efni henta best. Blöðruútgáfan nýtur sín vel í efni með ákveðinni stífni sem heldur forminu, á meðan útgáfan án blöðruforms kemur fallega út í efni með þyngra falli.

Þú þarft einnig:

Falinn rennilás, 25 cm
Straujanlegt milliefni (flíselín)
Saumþráð í stíl við efnið
Hnapp, 1 stk., 15–17 mm í þvermál

Sjá nánari upplýsingar