Fara í upplýsingar um vöru
1 af 2

Meet Milk

Tencel™ franskt terrí í haustbrúnu

Tencel™ franskt terrí í haustbrúnu

Venjulegt verð 2.600 ISK
Venjulegt verð Söluverð 2.600 ISK
Útsala Uppselt
Skattar innifaldir.

Mjúkt og meðalþykkt terry-prjónaefni úr Tencel™ Lyocell, með slétta réttu og lykkjaða röngu sem gefur efninu létta fyllingu og náttúrulegan teygjanleika.
Efnið er í haustbrúnum tón og hefur fallega, smjörmjúka snertingu og flæðandi draperingu sem gerir það einstaklega þægilegt við húð.
Það hentar vel í léttar peysur, boli, peysuboli, kjóla og buxur, þar sem óskað er eftir aðeins meiri þunga en í jersey-efni, en minna en í hefðbundnu sweat-efni. Þetta efni er oftast notað í hettupeysur eða útipeysur.

Rétta og röng efnisins hafa ólíka áferð sem gerir það skemmtilegt í hönnun — til dæmis er fallegt að leika sér að því að nota báðar hliðar saman, eins og í raglan-peysum eða smáatriðum sem sýna andstæðu í áferð.TENCEL™ trefjarnar veita mýkt, öndun og náttúrulegan glans sem heldur sér við endurtekna notkun.

Samsetning: 94% TENCEL™ Lyocell / 6% teygja
Breidd: 160 cm
Þyngd: 240 g/m²
Vottanir: Oeko-Tex® Standard 100; LENZING™ TENCEL™ Lyocell
Þvottur og umhirða: Þvoið við lágan hita – hengið eða leggið flatt til þerris – ekki nota þurrkara. Best er að nota gufara þar sem efnið heldur þá betur mýkt og áferð.

Sjá nánari upplýsingar