Fara í upplýsingar um vöru
1 af 2

Meet Milk

Tencel™ Ponte með áferð í svörtu

Tencel™ Ponte með áferð í svörtu

Venjulegt verð 4.900 ISK
Venjulegt verð Söluverð 4.900 ISK
Útsala Uppselt
Skattar innifaldir.

Ponte áferðarprjónið er unnið úr TENCEL™ Lyocell og styrkt með nyloni til að auka endingu og form. Efnið hefur mjúka en þétta snertingu, fellur fallega og heldur lögun sinni án þess að missa mýktina.

Þetta er tilvalið efni fyrir flíkur sem þurfa bæði teygjanleika og strúktúr, þar sem óskað er eftir aðeins meiri þunga og efnisþykkt en venjulegt jersey gefur – til dæmis í blússur, kjóla, buxur, létta peysu eða jakka og pils.
Þessi útgáfa af ponte-prjóni er örlítið léttari og mýkri en hefðbundið ponte, með sléttri áferð sem liggur þægilega að húð.
Samspil náttúrulegra og tæknilegra trefja gerir efnið endingargott og fjölhæft í notkun.

Samsetning: 68% TENCEL™ Lyocell / 30% nylon / 2% teygja
Breidd: 160 cm
Þyngd: 280 g/m²
Vottanir: Oeko-Tex® Standard 100; LENZING™ TENCEL™ Lyocell
Þvottur og umhirða: Þvoið við lágan hita – hengið eða leggið flatt til þerris – ekki nota þurrkara. Best er að nota gufara þar sem efnið heldur þá betur mýkt og áferð.

Sjá nánari upplýsingar