Merchant and Mills
Tencel hör blanda Seattle Sky
Tencel hör blanda Seattle Sky
Ekki tókst að hlaða upp afhendingarmöguleikum
Þetta fallega og fjölhæfa efni hentar fyrir margar tegundir af fatnaði: Kjóla, toppa, buxur og jafnvel létta yfirhöfn/jakka. Það hefur mjúkt og flæðandi draperingu með mattri áferð. Hörin gefur efninu aðeins meiri þéttleika og örlítið ójafna hráa áferð sem gerir það einnig auðveldara að sauma.
Efnið hleypur um 6% við fyrsta þvott, því verður að þvo það áður en það er sniðið og saumað.
Samsetning: 85% Tencel™ / 15% hör
Breidd: 150 cm
Þyngd: 203 g/m² (6 oz)
Þvottaleiðbeiningar:
– Leggið í bleyti fyrir fyrsta þvott
– Þvoið við lágan hita á lágri vindu
– Ekki setja í þurrkara
– Best að hrista vél útúr vélinni og leggja flatt
– Strauið við lágan hita
– Þvoið flíkur á röngunni eftir að þær hafa verið saumaðar
Athugið: Yfirborð Tencel verður örlítið mattara með þvotti og notkun og það fær á sig "þvegið" (wash) útlit.
Tencel™ er sellulósutrefja unnin úr viðarmassa sem kemur frá sjálfbærum og rekjanlegum skógarplöntum. Framleiðslan fer fram í closed-loop kerfi þar sem allt að 99% vatns og leysiefna eru endurunnin og notuð aftur, sem gerir ferlið mun umhverfisvænna en bómullarframleiðslu.
Efnið er mjúkt, endingargott og krumpast lítið. Það hefur silkimjúka draperingu, andar vel og dregur í sig allt að helmingi meiri raka en bómull. Tencel™ hentar vel fyrir viðkvæma húð, er bakteríuhamlandi og hitajafnandi.
Framleiðslan krefst minna vatns og orku en hefðbundin náttúruleg efni, og trefjarnar eru lífbrjótanlegar. Litun fer fram með minna magni lita, og framleiðendur vinna stöðugt að grænni og skilvirkari aðferðum.
Share
